
Velkomin á Mosa
„Eftir að Anna og Jón fluttu frá Mosum ákváðu börn þeirra og fósturbörn að halda við og bæta íbúðarhús þeirra og gera það að sumarhúsi, þar sem þau gætu dvalið í átthögum hluta úr sumri.“
Ættaróðalið á Síðunni
Á Mosum eiga afkomendur hjónanna Önnu Kristófersdóttur og Jóns Bjarnasonar sinn sælureit. Til Mosafélagsins var stofnað árið 1977 þegar eftirlifandi börn og uppeldisbörn þeirra hjóna ákváðu að byggja upp gamla íbúðarhúsið og gera Mosana að eftirsóknarverðum dvalarstað í framtíðinni. Í samþykktum félagsins segir að tilgangur þess sé að vernda minningu hjónanna Önnu og Jóns og auka kynni barna þeirra og annarra afkomenda, m.a. með viðhaldi og rekstri hússins að Mosum og efla hvers konar ræktun á lóðinni.
Í Mosahúsinu eiga margir góðar minningar enda staðurinn einstaklega friðsæll. Afkomendur Jóns og Önnu skipta með sér vikum á hverju ári en einnig geta ættarlaukar leigt húsið utan sumartímans. Á hverju ári eru farnar vor- og haustferðir þar sem frændfólk lætur hendur standa fram úr ermum, sinnir viðhaldi, þrifum eða skógrækt.
Hér á Mosavefnum eru ítarlegar upplýsingar um Mosafélagið og ættina. Upplýsingar og ábendingar má senda á mosar [hjá] mosar.is
Hægt er að leigja Mosahúsið utan hefðbundinna sumarúthlutunar - sjá hér.

Í niðjatalinu er að finna kafla eftir Hermann Jónsson um nokkur æviatriði Jóns og Önnu sem ritaður var 1987.
Það er áhugavert að lesa um sögu forfeðranna.
„Þegar flutt var búferlum að Mosum 1942 var sest að í bráðabirgðahúsnæði. Um sumarið var reist íbúðarhús í túninu á bakka Geirlandsár, en þetta sumar var áin brúuð. Íbúðarhúsið byggðu Þorbergur Jónsson, bóndi á Prestsbakkakoti, tengdasonur Jóns og Önnu og sonur þeirra Jakob, þó að önnur börnin hefðu þar og lagt hönd að verki. Var flutt í húsið á árinu. Önnur jarðarhús fyrir búfé voru reist á þessu ári og næstu árum.“
/Hermann Jónsson um nokkur æviatriði Jóns og Önnu.

Elsa Bjarnadóttir og Óskar Bjarnason.


Klassískt sumar á Mosum!

Mosasystkini ásamt Jóni og Önnu. Fremri röð f.v.: Bjarni, Ragnar, Jón, Anna, Helga, Anna Stína og Sigrún. Aftari röð f.v.: Jakob, Kristófer, Kristjana, Anna Jóna, Ólafía, Rannveig, Rafn, Páll, Ólafur, Hermann og Halldór. Mynd tekin 15. apríl 1961.
Anna Halldórsdóttir og Jón Hrólfur Sigurjónsson. Sigurjón Hrólfsson í bakgrunni.
Halldór og Sigga í Vík.

Rafn Valgarðsson.

Úlfhildur Fenger, Sigurjón Gunnarsson og Sigrún Fenger.

Rannveig Kristjana Jónsdóttir.

Rannveig Kristjana Jónsdóttir.

Rannveig Jónsdóttir.

Kristófer Þorvarðarson.

Kristófer fyrir miðju.

Fjölskyldan í Prestbakkakoti.

Jón afi.

Anna Kristófersdóttir.

Málverkið af Jóni Bjarnasyni. Málað af Sigurði Sigurðarsyni, eiginmanni Önnu Stínu.

Jón og Veiga árið 1975.

Ólafur Jónsson.

Fermingarmyndin af Páli í Vík.

Jakob, Ólafur, Daniel, Sigurjón, Anna Kristín, Sigríður Jóna, Heiðar Sigurjónsson, Nanna, Ólafía Sigríður, Rannveig, Páll og Sólmundur.

Halli og Nanna í Rannveigarlundi.
Bára Sólmundsdóttir.

Ólafur, Katla Tjörvadóttir og Tjörvi.


Vinnuferð á Mosa. Ásta, Halli, Elva Dóra, Ólafur, Stína, Bjarni, Hafdís, Gummi, Elsa, Æsa, Jakob, Kristófer og Bjarni.

Ólafur uppi á Kylla með Elsu, Elvu Dóru og Æsu.
Sigurjón, Úlfhildur og Dóra.
Jóna Sól og Bára Sólmundsdætur.

Hrafnhildur Helgadóttir ásamt sonum sínum þeim Hlyni Má og Hilmari Hrafni.
